Kamillukremið var upphaflega búið til til að hjálpa lítilli stúlku frá Grænlandi sem fæddist með mjög þurra og sprungna húð. Kremið sýndi framúrskarandi árangur í að græða og róa húðina hennar og var í framhaldinu sett á markað.
Þetta er 100% náttúrulegt krem sem inniheldur fjórar tegundir af kamillu. Það er mjög nærandi, mýkjandi og græðandi og hentar vel fyrir viðkvæma húð.
Kamillukremið hefur reynst gagnlegt á þurra bletti, exem, sprungna húð og mjög þurra og eða pirraða húð.
Notkun:
Berðu lítið magn af kremi á húðina og nuddaðu varlega inn. Má nota eins oft og þörf krefur.
Jurtir í Aðalhlutverki:
Íslensku kamillutegundirnar Hlaðkolla (Matricaria discoidea) og Baldursbrá (Matricaria maritimum) gegna lykilhlutverki í Kamillukremi.
Þær hafa róandi áhrif og eru þekktar fyrir að draga úr bólgum, flýta fyrir sáragræðslu og lina kláða. Milt, fituríkt og mjög rakagefandi krem fyrir þurra húð. Gott á þurrkubletti og exem. Virkar mjög róandi á húðina og hentar börnunum einstaklega vel.
Innihald:
Aqua (Water), Prunus Amygdalus Dulcis (Sweet Almond) Oil, Cera Alba (Beeswax), Cetearyl Glucoside, Simmondsia Chinensis (Jojoba) Seed Oil∆, Glycerin, Butyrospermum Parkii (Shea) Butter, Glucose, Calendula Officinalis Flower Oil∆, Squalane, Triticum Vulgare (Wheat) Germ Oil, Citrus Medica Limonum (Lemon) Oil∆, Citrus Nobilis (Mandarin Orange) Oil∆, Dehydroacetic acid & Benzyl alcohol, Xanthan Gum, Aniba Rosaeodora (Rosewood) Wood Oil, Sodium Lactate, Anthyllis Vulneraria Flower Extract, Cetraria Islandica Extract, Anthemis Nobilis Flower Oil∆, Chamomilla Recutita (Matricaria) Oil∆, Matricaria Discoidea Flower/Leaf/Stem Extract*, Matricaria Maritima Extract*, Geranium Sylvaticum Extract*, Lamium Album Extract*, Equisetum Arvense Extract*, Alchemilla Vulgaris Extract*, Potentilla Anserina Extract*, Spiraea Ulmaria (Meadowsweet) Extract*, Stellaria Media (Chickweed) Extract*, Trifolium Pratense (Clover) Flower Extract*, Capsella Bursa-Pastoris Extract*, Salix Alba (Willow) Bark Extract*, Lactic Acid, Benzyl Benzoate**, Citral**, Geraniol**, Limonene**, Linalool**.
∆ Lífrænt vottuð innihaldsefni.
* Villtar íslenskar jurtir.
**Úr náttúrulegum ilmkjarnaolíum.