Purity Herbs Ísland

UNDUR RÓSARINNAR - THE ROSE WONDER

8.610 kr

Lýsing:
Vinsælasta andlitskremið okkar—mjög nærandi og silkislétt formúla sem styrkir og endurlífgar húðina. Kremið er þróað fyrir þurra, þroskaða og eða vannærða húð sem þarf aukna umhyggju, mýkt og jafnvægi.

Í kreminu sameinast íslenskar handunnnar jurtir, hreinar jurtaolíur og ilmkjarnaolíur í mildri en áhrifaríkri blöndu. Þessi náttúrulega samsetning styður við heilbrigða starfsemi húðarinnar, hjálpar til við að hægja á öldrunareinkennum og gefur húðinni endurnærandi styrk.

Við reglulega notkun verður húðin sýnilega mýkri, fyllri og ljómandi af heilbrigði—í fullkomnu jafnvægi við náttúruna.

Notkun:
Berið lítið magn af kreminu á allt andlitið. Notist bæði sem dag og næturkrem. Fyrir bestan árangur notið á eftir Purity Herbs Hreinsimjók og Andlitsvatni.

Jurtir og Olíur:
Hjartaarfi (Capsella bursa-pastoris) Vítamín- og steinefnarík jurt sem hefur herpandi áhrif og gefur stinnari húð.
Hafþyrnisolía (Hippophae rhamnoides) - Næringarrík (Omega 7) olían er rík af fitusýrum og vítamínum sem næra húðina.
Rósaviðarolía (Aniba rosaeodora) - Örvar frumuendurnýjun og færir húðinni jafnvægi.

Innihald:

Aqua (Water), Prunus Amygdalus Dulcis (Sweet Almond) Oil, Cetearyl Glucoside, Simmondsia, Chinensis (Jojoba) Seed Oil ∆, Cera Alba (Beeswax), Glycerin, Butyrospermum Parkii (Shea) Butter, Triticum Vulgare (Wheat) Germ Oil, Calendula Officinalis Flower Oil∆, Squalane, Persea Gratissima (Avocado) Oil∆, Dehydroacetic acid & Benzyl alcohol, Xanthan Gum, Sodium lactate, Hippophae Rhamnoides Fruit Oil∆, Aniba Rosaeodora (Rosewood) Wood Oil, Citrus Medica Limonum (Lemon) Oil∆, Commiphora Myrrha Oil∆, Citrus Aurantifolia (Lime) Oil∆, Calophyllum Inophyllum Seed Oil∆, Matricaria Discoidea Flower/Leaf/Stem Extract*, Anthyllis Vul- neraria Flower Extract*, Capsella Bursa-Pastoris Extract*, Cetraria Islandica Extract*, Euphrasia Officinalis Extract, Lavandula Angustifolia (Lavender) Flower Extract, Matricaria Maritima Extract*, Stellaria Media (Chickweed) Extract*, Symphytum Officinale Leaf Extract, Trifolium Pratense (Clover) Flower Extract*, Viola Tricolor Extract*, Lactic Acid, Benzyl Benzoate**, Citral**, Geraniol**, Limonene**, Linalool**.

∆ Lífrænt hráefni.
* Villtar íslenskar jurtir.
**Úr náttúrulegum kornkjarnaolíum.

þér gæti einnig líkað við

Nýlega skoðað